Burnout 2010 sýning og Biker Ball.. (27/4 ´10)
Dagana 30. apríl til 2. maí verður haldin Burnouthelgin 2010 sem er samstarfsverkefni Snigla, Kvartmíluklúbbsins og BÍKR. Burnouthelgin 2010 mun bjóða upp á dagskrá við allra hæfi og þar á meðal sýningarviðburð sem verður sennilega sá stærsti síðan Sýningarhöllin Ártúnshöfða var og hét. BÍKR mun standa fyrir brautarrallý af bestu gerð og fleiri uppákomum á Samskipasvæðinu við Holtagarða. Á sýningunni verða sýnd um 200 tæki, sportbílar, kvartmílutæki og þar af um 100 mótorhjól á tæplega 8000 fermetrum.
Gamalt og sérstakt er markmið Snigla með mótorhjólahluta sýningarinnar en mótorhjól verða sýnd á um 2500 fermetrum og markmiðið að draga fram bæði gömul og sérstök mótorhjól. Á sýningunni verða margir fallegir gripir sem sumir hverjir hafa ekki verið sýndir áður svo sem Hendeson 1918 gert upp af Grími Jónssyni. Ýrr í Tatoo bike verður með Airbrush á sýningunni og sprautar og selur boli. Einnig verða hjól sem hafa verið skreytt með Airbrush á sýningunni. Kynning verður á Mótorhjólasafni Íslands og margir gripir safnsins á svæðinu.
Innkoma Snigla af þessari sýningu mun öll renna til Mótorhjólasafns íslands (www.motorhjolasafn.is) og forvarnarverkefna á vegum umferðarnefndar samtakanna. Umferðarnefnd mun meðal annars dreifa límmiðum með áletruninni „Sérðu mótorhjól? – Líttu aftur!“ til að setja í bílrúður á sýningunni.
Ef þú hefur áhuga á að sýna hjól á sýningunni, hafðu samband við Berg í 1831@sniglar.is
Smellið hér til að sjá PDF skjal um sýninguna

|
1.maí skipulag.. (27/4 ´10)
Sælt veri fólkið
1. maí er á laugardaginn og ætlunin er að fara suður eins og venjulega því það er okkar skylda.
Í ár verða áherslur aðeins meiri en að minna fólk á að við hjólafólk eru komin á göturnar eins og sjá má hér fyrir neðan.
Við skulum hittast hjá ON kl 9:45 og leggja af stað 10:10 STUNDVÍSLEGA.
Hlakka til að sjá ykkur.
Smellið hér til að sjá PDF skjal með dagskrá dagsins
Kveðja, Freysi
Biker Ball
Eftir að hafa hjólað frá okkur mest allt vit í hópkeyrslunni um daginn þá ætlum við að skemmta frá okkur því viti sem eftir er að kvöldi 1. maí á Players Kópavogi. Rokk/blues bandið Síðasti Séns leikur fyrir dönsum og djammi með DJ Mikkólf sér til halds og trausts.
Miðaverði hefur verið stillt í hóf og inn kostar litlar 1500 krónur íslenskar. Ekki þýðir að borga með erlendum gjaldeyri, við komust hvort eð er ekkert út til að eyða honum. Bandið samanstendur af þaulreyndum djammhundum sem marga fjöruna hafa sopið og DJ Mikkólfur hefur sopið þær tvær eða þrjár, enda fjöru áhuga maður mikill.
Rokk, Ról og Mótorhjól.
Kveðja, Sniglar
|
Afmælisveisla Postula.. (24/4 ´10)
Postular eru að bjóða í svaka afmælisveislu þann 1.maí...
Sjá nánari dagskrá hér
Vefsíða Postula
Bifhjólafélagið Skuggar
|
1.maí keyrsla Snigla (25/4 ´10)
„Á 1. Maí hefur um árabil verið haldinn forvarnardagur Snigla, með hópkeyrslu um borgina til að minna aðra vegfarendur á að mótorhjólin eru komin út á göturnar. Þetta ár er engin undantekning og er ætlunin nú sem fyrr að minna rækilega á okkur á götum borgarinnar. Undanfarin ár hefur hópkeyrslan verið farin eftir stofnbrautum en ef allt gengur upp þetta árið má reikna með að farin verði mun skemmtilegri og meira áberandi leið. En 1. maí er líka dagur mótmæla og ætlum við með keyrslunni einnig að vekja athygli á því misrétti sem til stendur að beita mótorhjólafólk með tilkomu nýrra umferðarlaga sem liggja fyrir alþingi, háum sköttum á bensíni og ósanngjörnum vörugjöldum á hlífðarfatnaði. Það er hagsmuna mál okkar allra að mótorhjólafólk sitji við sama borð og aðrir vegfarendur og okkur sé gert kleift að gera mótorhjól að valkosti sem farartæki og verja okkur gegn slysum án þess að vera beitt „Refsisköttum“. Við hvetjum alla til að mæta í keyrsluna og sýna samstöðu mótorhjólafólks í verki !
Kveðja Freysi.“
|